VAKT VARÐMANNA

Um vaktina

Yfirsýn yfir átök og varnarmál í heiminum

Vakt Varðmanna er kort af átökum og atvikum í varnarmálum um allan heim. Varðmenn Íslands halda kortinu úti til að gefa skýra og yfirvegaða mynd af stöðunni, með sérstakri áherslu á Norður-Atlantshaf og norðurslóðir.

Hvernig atvik komast á kortið

  1. Vöktun. Vaktin les fréttaveitur og opin gagnasöfn með reglulegu millibili. Listi yfir heimildir er neðst á síðunni.
  2. Flokkun. Gervigreind (Claude frá Anthropic) les hverja frétt, metur hvort hún fjalli um átök eða varnarmál, flokkar hana, metur alvarleika og finnur hvar atburðurinn varð.
  3. Staðsetning. Staðsetningin er borin saman við landfræðileg gagnasöfn (GeoNames og OpenStreetMap). Þegar fréttin nefnir aðeins land eða hafsvæði er punkturinn settur á mitt svæðið og staðsetningin merkt sem áætluð.
  4. Yfirferð. Ritstjórar Varðmanna fara yfir hvert atvik, leiðrétta texta og staðsetningu og samþykkja það. Ekkert birtist á kortinu án samþykkis ritstjóra.
  5. Heimildir. Hvert atvik vísar á fréttirnar sem það byggir á. Textinn á kortinu er stutt samantekt og fullyrðingar eru eignaðar heimildum sínum.

Alvarleiki

  • 5 · Alvarleg. Árás með miklu mannfalli, stigmögnun eða ný víglína, beiting gereyðingarvopna.
  • 4 · Mikil. Mannskæð árás eða orrusta, stórárás á mikilvæga innviði, ný stórsókn.
  • 3 · Talsverð. Árás eða atvik með takmörkuðu mannfalli, veruleg skemmdarverk, stór heræfing við landamæri.
  • 2 · Lítil. Minniháttar atvik, hlerun flugvéla, hefðbundin heræfing, stefnumál eða vopnakaup.
  • 1 · Upplýsingar. Bakgrunnsupplýsingar sem eiga samt heima á korti.

Allir pinnar á kortinu eru í sama lit og táknið í þeim sýnir flokkinn. Pinninn stækkar með alvarleika, atvik á stigi 4 og 5 fá rauðan punkt og atvik á stigi 5 púlsa.

Fyrirvari

Fréttir af átökum eru oft óstaðfestar í fyrstu og tölur um mannfall breytast. Kortið sýnir það sem heimildirnar segja á hverjum tíma, eignað þeim. Það er ekki opinbert mat á hernaðarástandi.

Heimildir

Listinn er ekki tiltækur í augnablikinu.

Gögn og kortagrunnur

Kortagrunnur: © OpenStreetMap-höfundar, OpenMapTiles og OpenFreeMap. Landamæri: Natural Earth. Örnefni: GeoNames (CC BY 4.0). Atburðagögn: The GDELT Project.

Ábendingar

Ábendingar og leiðréttingar má senda Varðmönnum Íslands á vardmenn.is.

Á kortið